ForsíðaBúgarðurÞjónustaNautgriparæktSauðfjárræktHrossaræktJarðræktBúrekstur
 
Nýtt á vefnum
Á döfinni
 


Syðri-Hagi hlaut hvatningarverðlaun BSE
föstudagur, 15 apríl 2011
verdlaun2011-minniAðalfundur BSE var haldinn í Hliðarbæ þann 13. apríl. Á fundinum voru veitt verðalun BSE fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2010. Nautgriparæktarverðlaunin fékk Jóhann Tryggvason á Vöglum, Sauðjárræktarverðlaunin hlutu Árni og Borghildur í Stóra-Dunhaga og Hvatningarverðalun BSE hlutu Ármann og Jónas í Syðri-Haga sem hafa verið brautryðjendur í sauðamjöltum. Á fundinum fjallaði Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Mannviti um möguleika til orkuvinnslu í landbúnaði og Haraldur Benediktsson formaður BÍ flutti erindi um varnarlinur Bændasamtakanna gagnvart ESB umsókn. Sigurgeir Hreinsson var endurkjörinn í stjórn BSE og Gunnhildur Gylfadóttir Steindyrum kosin ný í stað Svönu Halldórsdóttur. Sigurgeir Hreinsson var endurkjörinn formaður BSE og Guðmundur Bjarnason varaformaður. Hér að neðan má sjá tillögur fundarins.
Lesa meira...
 
Heiðurshornið veitt í 5. sinn
laugardagur, 02 apríl 2011

4fb996e6-f676-49e8-8806-eef48c1d7843_msÁ aðalfundi BSSÞ sem haldinn var í Ýdölum 23. mars sl. var verðlaunagripurinn Heiðurshornið veittur í 5. sinn, en þetta er farandgripur sem Sf. Mývetninga gaf í minningu Eysteins Sigurðssonar á Arnarvatni.  Að þessu sinni hlaut Agnar Kristjánsson í Norðurhlíð verðlaunin, en næst honum komu Baldursheimur I og Baldursheimur II, Grænavatn II og Arnarvatn IV.

Á sama fundi voru veitt hvatningarverðlaun Búnaðarsambandsins, sem veitt eru þeim sauðfjárbónda sem náð hafa jafnbestum árangri í sauðfjárræktinni þegar litið er til fjölda lamba til nytja, fallþunga og kjötflokkunar.  Svo skemmtilega vildi til að Agnar hlaut þau líka og er það í annað sinn sem hann fær þau.  Á myndinni hér til hliðar má sjá þau heiðurshjón, Agnar og Elínu Kjartansdóttur hampa verðlaununum kampakát.

Þeir bæir sem næstir komu að stigum voru Búvellir, Stóru-Tjarnir, Sílalækur og Ystihvammur.

 
Óskum eftir klaufskurðarmanni til starfa
mánudagur, 14 mars 2011
Búnaðarsamband Eyjafjarðar óskar eftir að ráða laghentan einstakling til að sjá um klaufskurð kúa. Verkið er unnið í nýlegum og fullkomnum klaufkurðarbás sem er í eigu BSE og BSSÞ. Starfssvæðið er Eyjafjörður og S-Þingeyjarsýsla og einnig hafa verið farnar ferðir á Austurland. Ekki er um fullt starf að ræða og er reynt að safna saman bæjum og ákveðnum svæðum til að nýta tíma og ferðir sem best. Vinnutími er því sveiganlegur og getur hentað vel með öðrum verkefnum.Nánari upplýsingar veitir Vignir í síma 460-4477. klaufskurdurb
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 8 af 305
Búgarður - ráðgjafarþjónusta á Norðausturlandi | Óseyri 2, 600 Akureyri | Garðarsbraut, 641 Húsavík | Sími 460-4477 | Fax 460-4478